Vorgrill og skólaslit

Vorhátíð 4. júní 2020

Fimmtudaginn 4. júní verða stöðvar á skólalóð fyrir nemendur í 1. - 10. bekk þar sem árgangar fara á milli og taka þátt í hreyfingu og leikjum. Skipulag fyrir stöðvar og mönnun þeirra hangir á töflunni til móts við kaffistofu.

1.- 4. bekkur

Kl. 08:00 – 09:00 1. - 4.b ”frjáls mæting” – spil og rólegheit

Allir í 1. - 6. bekk

Kl. 09:00 Mæting í stofur hjá umsjónarkennara

Kl. 09:20 – 10:20 Útileikir – stöðvar á skólalóð.

Kl. 10:20 – 10:40 Frímínútur

Kl. 10:40 Mæting í stofur til umsjónarkennara

Kl. 11:20 Grill 1. og 2. bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill

 Kl. 11:40 Grill 3. og 4. bekkur – heimferð eða Frístund eftir grill

Kl. 11:50 Grill 5. og 6. bekkur – heimferð eftir grill

 Nemendur í 1. - 4. bekk eru í umsjón kennara sinna til kl. 12:00. Þá opnar Frístund og hinir fara heim sem ekki eru skráðir þar.


7. – 10. bekkur

Kl. 10:00 Mæting hjá umsjónarkennara. Allir í 7. – 10. bekk

Kl. 11:00 – 12:00 Útileikir – stöðvar á skólalóð

Kl. 12:00 Grill og heimferð  

Skólaslit 5. júní 2020

Mæting í stofur:

1.-9. bekkur 9:00-11:00

Nemendur mæta í stofur hjá umsjónarkennurum, ljúka vetri á skemmtilegan hátt saman áður en flogið er út í sumarið.

Ekki er gert ráð fyrir að foreldrar mæti á skólaslit.

 

Útskriftarathöfn 10. bekkjar

Skólaslit og útskriftarathöfn 10. bekkjar hefst á sal skólans kl.16:00. Fyrir athöfnina verður hópmyndataka sem hefst klukkan 15:30.

Að þessu sinni mælumst við til þess að ekki fleiri en 2 aðilar komi með hverjum nemanda til þess að við náum að vera við 200 manna markið.

Eftir útskrift verður boðið uppá kaffi og meðlæti með einföldum hætti í matsal.

Okkur er í mun að gera útskrift nemenda hátíðlega og skemmtilega en jafnframt að fara eftir þeim reglum sem gilda í samfélaginu núna.