07.01.2016
1. bekkur hittist fyrir utan skólann í gær og
kvaddi öll ljótu orðin sem nemendur kunnu á táknrænan hátt. Með aðstoð
slökkviliðsmanns voru ljótu orðin (sem skrifuð höfðu verið á miða) sett í þar
til gerðan pott. Kveikt var í þeim sem voru endalok þeirra. Á nýja árinu 2016
ætla nemendur að vera duglegir að nota öll þau jákvæðu og gleðilegu orð sem þeir
kunna. Fleiri myndir hér.
Lesa meira
28.12.2015
Mánudaginn 4. janúar er starfsdagur í Brekkuskóla og þriðjudaginn 5. janúar er skóli samkvæmt stundaskrá.Starfsfólk Brekkuskóla óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Lesa meira
18.12.2015
Foreldrafélag
Brekkuskóla gefur nemendum veglega jólagjöf bókagjöf til skólasafns!
Þar sem nú er hafið mikið lestrarátak á landsvísu þótti
foreldrafélaginu við Brekkuskóla mikilvægt að skólasafnið hefði að geyma
áhugaverðar og spennandi bækur sem nemendur hefðu jafnvel sjálfir valið. Foreldrafélagið fékk því nemendur á öllum
skólastigum til að setja saman bóka-óskalista sem félagið fékk í hendur í
byrjun desember. Það færði síðan skólanum veglega bókagjöf um 200 bækur og bætir þannig
verulega aðgengi nemenda að nýju og fjölbreyttu lesefni. Þess má geta að bókaútgáfur voru
sérlega liðlegar og veittu góða afslætti. Fjölbreytt úrval bóka á skólasafni er
mikilvægt fyrir nemendur til að örva og efla lestur. Á þennan hátt styður
foreldrafélagið við skólasafnið í því að sinna sínu hlutverki og að nemendur
hafi aðgang að lesefni sér til gamans og gagns. Undanfarin ár hafa myndast
langir biðlistar eftir vinsælum bókum á skólasafninu en með þessari gjöf munu
þeir styttast verulega.
Bækurnar eru nú komnar í hús og fengu nemendur þær
afhentar í morgun, á Litlu jólunum, 18. desember.
Fleiri myndir hér.
Lesa meira
04.12.2015
Nemendur í 6. bekk hafa verið að vinna með Snorrasögu og völdu að vinna hana á mjög skemmtilegan máta. Fleiri myndir hér.
Lesa meira
01.12.2015
Nokkrir glaðir krakkar nýttu snjóinn vel í frímínútum í dag.
Lesa meira
18.12.2015
Litlu jólin - 18. desember 2015
Frístund opnar kl.08:00 fyrir nemendur sem þar eru
skráðir.
Nemendur í 2., 4., og 10. bekk mæta klukkan 08:00 í
heimastofur. Klukkan 09:00 koma þau á sal skólans, þar sem verður dansað í
kringum jólatré. Skóladegi lýkur klukkan 10:00 og Frístund opnar þá fyrir
nemendur sem þar eru skráðir.
Nemendur í 3. , 6., 7. og 8. bekk mæta klukkan 09:00 í
heimastofur. Klukkan 10:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í
kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 11:00 og Frístund verður opin fyrir
nemendur sem þar eru skráðir.
Nemendur í 1., 5. og 9. bekk mæta klukkan 10:00 í
heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í
kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 12:00. Frístund verður opin fyrir
nemendur sem þar eru skráðir. Starfsdagur verður mánudaginn 4. janúar.
Kennsla hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá
þann 5. janúar 2016.
Skólabílar 18. desember verða sem hér segir:
kl. 07:35 08:35
og 09:35 Innbær - Brekkuskóli
kl. 10:15 11:15
og 12:15 Brekkuskóli - Innbær
Lesa meira
29.11.2015
Mánudaginn 30. nóvember verður starfsdagur hjá starfsfólki Brekkuskóla og nemendur í fríi. Frístund verður opin eftir hádegi fyrir þá sem þar eru skráðir.
Lesa meira
25.11.2015
Búið er að stofna hlekk á Erasmus+ verkefni Brekkuskóla til hægri á heimasíðunni. Þetta verkefni heitir Learn, Create and Communicate og er samstarfsverkefni 6 landa og er verkefni til 3 ára.
Lesa meira
24.11.2015
Í gær kom Slökkviðliðið í heimsókn til nemenda í 3. bekk með eldvarnarfræðslu. Að því loknu fóru allir út að skoða sjúkrabíl og meira að segja voru sírenur látnar hljóma örstutt. Fleiri myndir hér.
Lesa meira
11.11.2015
Krakkarnir í Brekkuskóla voru mjög ákveðnir í
árshátíðarundirbúningnum og allir lögðu sig fram um að gera sitt besta.
Árshátíðarundirbúningurinn gekk vel og öll atriðin voru frábær. Sumir árgangar
höfðu ekki mikinn tíma en atriðin voru framúrskarandi og vel leikin miðað við í
hve mikilli tímaþröng þau voru unnin. Margir krakkarnir ákváðu atriðin sín
sjálfir og voru mjög hugmyndaríkir og skapandi. Eldri árgangarnir skrifuðu
leikritin sín sjálfir, þeir völdu sér hugmyndir og gerðu þær að veruleika og
settu þær fram út frá eigin hugmyndum.
Við fórum í fyrsta bekk og fengum að tala við tvo æðislega
krakka og spurðum nokkurra spurninga um árshátíðina. Fyrsti bekkur gerði atriði
með þremur lögum sem krakkarnir lærðu utan að og sungu af mikilli list.
Krakkarnir eru mjög glaðir með atriðið sitt og finnst fyrsta árshátíðin sín
mjög skemmtileg og hlakka til að fá að vera partur af henni þetta ár og öll hin
sem tíminn gefur. Til að hrista aðeins upp í spurningunum spurðum við þau hver
uppáhalds lögin þeirra eru og hverja þau myndu vilja leika. Lagið Golden boy úr
Eurovision kom oft upp og ef til vill myndu þau vilja vera hinn eini sanni
Svampur Sveinsson og spræku mörgæsirnar fjórar frá Madagaskar.
Við spjölluðum við tvo krakka úr níunda bekk sem eru með
kynjabreytta leikritið Mjallhvíti og dvergana sjö sem breytt var i
Skjannahvítan og ömmurnar sjö. Hugmynd þeirra að leikritinu byrjaði með því að
þau vildu vilja breyta um hlutverk á milli kynjanna, svo völdu þau söguna um Mjallhvíti
sem grunn og kom það æðislega út. Þeim finnst atriðið sitt skemmtilegt og
finnst gaman að sjá hvað öðrum líkar vel við það og þau eru stolt af sér fyrir
að ná þessu svona vel. Við spurðum sömu spurninga og áður og fengum svörin
James Bond og fallegu Adele sem á frægasta Hello orðið í nútímanum.
Tíundi bekkur ákvað að hafa hinn gamla góða barnaþátt Latabæ
og breyta honum í nútímaútgáfu. Fengnir voru fáeinir nemendur til að finna leikrit
og skrifa það á stuttum tíma og gekk það eins og í sögu. Báðum nemendunum sem
við töluðum við finnst æðislegt á árshátíðinni en ekki ætlum við að ljúga, það
skemmtilegasta við hana er að þurfa ekki að læra. Krakkarnir eru glaðir með
atriðið sitt og finnst gaman að gera kúnstir á sviði og dansa. Svörin við
spurningunum voru Leonardo Dicaprio, Lana Del Rey, Hákon Guðni og besta svarið
var við hvern Ágúst Elvar væri til í að vera ef hann mætti vera hver sem er, þá
valdi hann sjálfan sig.
Sjötti bekkur er með ævintýralandið eins og hefðin er og eru
þau mjög spennt yfir því og hlakka alveg hrikalega mikið til. Að mati þeirra
tveggja nemenda sem við töluðum við er draugahúsið og þrautirnar skemmtilegast
en auðvitað finnast þeim samt allt æðislegt á árshátíðinni. Svörin þeirra voru
Little mix og gamli góði bítillinn John Lennon.
Þegar farið var í þriðja bekk fengum við æðisleg svör. Þeim
finnst atriðið sitt um himingeiminn æðislegt og svo gaman að fá að fræða aðra
um geiminn. Þau lærðu líka margt og mikið og finnst gaman að fræðast um
himininn. Báðum nemendunum sem við spurðum finnst skemmtilegt á árshátíðinni og
hlakka til að fara í draugahúsið, tombóluna og auðvitað að sýna leikritið og
syngja lögin. Svörin við skemmtilegu spurningum okkar voru frábær því ekki bara
fengum við Svarið Pharell en lika Guns N Roses, Guð hvað krakkar eru töff.
Fengum við líka að vita að krakkarnir elska Minions og væru sko til að vera
þeir, helst samt King Bob.
Okkar góða, skemmtilega og ekki má gleyma Flawless
skólastjóra henni Jóhönnu Maríu finnst allt skemmtilegt við árshátíðina en
gleðin og spenningurinn er toppurinn. Hún er mjög glöð með öll atriðin og er
stolt af því hve mikill metnaður er lagður í þau. Hissa vorum við þegar svar
hennar við hvern hún væri til í að leika var Svampur Sveinsson en auðvitað er
uppáhalds söngkonan æðislega dívan hún Tina Turner. Jóhanna ætlar að fara í
tombóluna en er of smeik fyrir draugahúsið.
Það er greinilegt að allir hafa gaman á árshátíðinni.
Lesa meira