Fréttir

Kennaranámskeið í forritun

Kennt er samkvæmt aðferðafræði Skema og fléttað inn í kennsluna söguborðum, hugarkortum, smá sálfræði út frá virkni heilans og fræðslu um þau jákvæðu áhrif sem kennsla í forritun getur haft á börn. Þátttakendur munu sjá forrit verða að veruleika og upplifa hvað forritun getur verið skemmtileg auk þess hvernig hún getur nýst inn í aðrar námsgreinar. Hægt er að finna leiðbeiningar um hvernig Alice forritunarumhverfið er sótt á youtube.com/skemaeducation (Opnast í nýjum vafraglugga).
Lesa meira

Spurningakeppni grunnskólanna

Spurningakeppni grunnskólanna fer fram miðvikudaginn 28. nóvember kl. 17:00 í sal Brekkuskóla. Níu lið keppa að þessu sinni, tvö lið í einu. Nánari tímasetningar eru áætlaðar sem hér segir: Brekkuskóli, Hríseyjarskóli, Dalvíkurskóli og Oddeyrarskóli eru klukkan 17:00 Síðuskóli, Naustaskóli, Grenivíkurskóli og Glerárskóli rúmlega 18:00 Reikna má með að tímasetningar standist ekki alveg. Í fyrra var keppnin búin um kl. 21:00 Lið Brekkuskóla skipa: Halldór Heiðberg Stefánsson Jóhannes Stefánsson Margrét S. Benediktsdóttir Áfram Brekkuskóli! Ætlar þú að mæta? Enginn aðgangseyrir. Sjoppa 10. bekkinga verður opin.
Lesa meira

Working together - Comenius

Comeniusarverkefnið okkar þetta skólaárið hefur fengið lógó sem hér birtist. Lógóið er búið til af nemendum í samstarfsskólanum í Izmir í Tyrklandi. Einnig hefur verið sett upp vefsíða fyrir verkefnið þar sem upplýsingar um verkefnið og verk nemenda munu birtast. Vefurinn er hér, en einnig hér neðar á forsíðu vefsíðu Brekkuskóla.
Lesa meira

Gönguátakið - niðurstaða

Brekkuskóli tók þátt í verkefninu "Göngum í skólann" að venju, en þetta er í sjötta sinn sem verkefnið er haldið. Það voru 7. EJ og 6. ÞG sem stóðu sig best þetta skólaárið, en 6. ÞG vann einnig í fyrra. Þau fá að launum gullskóna góðu til varðveislu og deila bekkirnir með sér vörslunni. Þau fengu einnig sippuband, snú-snú band og bolta til afnota í frímínútum, en verðlaunin voru gefin af samstarfshópnum um Göngum í skólann. Nemendum og starfsfólki eru færðar kærar þakkir fyrir þátttökuna og góðan árangur. Öll erum við síðan hvött til að taka þátt í næsta átaksverkefni sem hefst 6. febrúar og nefnist "Lífshlaupið". Nánar um verkefnið á www.gongumiskolann.is Bekkur Gangandi/Hjólandi Akandi 2. bekkur 93% 7% 4. bekkur 92% 8% 5. bekkur 95% 5% 6. bekkur 98% 2% 7. bekkur 98% 2% 8. bekkur 89% 11% 10. bekkur 80% 20%  Meðalt. 92% 7,9%
Lesa meira

Morgunmóttaka hjá 5. bekk

Morgunmóttaka hjá 5. bekk verður þriðjudaginn 4.desember kl. 08:00 - 09:00. Brauðbollur og kaffi selt í matsal samkvæmt venju. Sjáumst í skólanum!
Lesa meira

Árshátiðarball

Nú er komið að árshátiðarballi Brekkuskóla sem allir hafa beðið eftir. Ballið byrjar kl 20.30 og stendur til miðnættis. Ballið er fyrir 8.-10.bekk en 7. bekkingar Brekkuskóla eru einnig velkomnir. Hinn geysivinsæli Jón Jónsson spilar ásamt DJ Bernódusi Óla. Aðgangseyrir er 1000 kr. Sjáumst! 10. bekkingar Brekkuskóla
Lesa meira

Óveður - er skóli?

Ef veður eru válynd er reglan sú að  foreldrar meta hvort þeir treysta börnunum í eða úr skóla. Starfsfólk er til taks í skólanum, en skóla er ekki aflýst nema í allra verstu veðrum. Þegar svo er þá er það gert með auglýsingu í útvarpi fyrir alla grunnskóla Akureyrarbæjar. Ef foreldrar meta það svo að þeir treysti ekki barni sínu í skólann þá eru þeir beðnir um að tilkynna það í síma 462-2525 eða með tölvupósti frá foreldri á brekkuskoli@akureyri.is  og þá er leyfi skráð á barnið. Nánar hér
Lesa meira

Skáld í heimsókn

Brynhildur Þórarinsdóttir kom í síðast liðinni viku og las fyrir 1. - 3. bekk úr bók sinni  Blávatnsormurinn sem er á metsölulista Eymundsson um þessar mundir. Gunnar Helgason kemur í heimsókn til 4. og 5. bekkja í Brekkuskóla 21. nóvember kl. 10:40 - 11:40 og les upp úr sögunni  Aukaspyrna á Akureyri sem einnig er á lista yfir söluhæstu bækur um þessar mundir. Bókin er æsispennandi saga sem stelpur og strákar um allt land hafa beðið óþreyjufull eftir síðan þau lögðu frá sér Víti í Vestmannaeyjum. Frá upplestrinum. Þorgrímur Þráinsson kemur í heimsókn til okkar 22. nóvember næstkomandi og mun lesa upp úr verkum sínum . Nýjasta bók Þorgríms er "Krakkinn sem hvarf" . Frá upplestrinum. Hann hittir nemendur sem hér segir: kl. 08:00 - 9:20 10. SGP í stofu 316 kl. 09:40 - 11:00 10. SÁ í stofu 316 kl. 11:20 - 12:00 4. og 7. bekkir í stofu 202-203 kl. 13:10 - 13:50 5. - 6. bekkur á sal
Lesa meira

Góð gjöf

Í dag kom fulltrúi frá foreldrafélagi Brekkuskóla og afhenti nemendum örbylgjuofn og samlokugrill að gjöf. Tækin verða staðsett í sjoppu skólans sem 10. bekkur rekur ár hvert. "Vinum Brekkuskóla" sem er heiti á sjóði foreldrafélags skólans og styrktur af foreldrum eru færðar bestu þakkir fyrir.
Lesa meira

Vann píanókeppni

Helgina 10. - 11. nóvember 2012 fór fram píanókeppni Epta í Salnum í Kópavogi, en Epta eru samtök evrópskra píanókennara. Keppt varr í þremur flokkum: 1. flokkur 14 ára og yngri, 2. flokkur 18 ára og yngi og 3. flokki 25. ára og yngri. Fulltrúi Tónlistarskólans á Akureyri var hinn 14 ára gamli Alexander Smári Kristjánsson Edelstein 9. SS Brekkuskólasem keppti í fyrsta flokki en kennari hans er Þórarinn Stefánsson sem er foreldri hér við skólann. Skemmst er frá því að segja að Alexander Smári sigraði í sínum flokki. Starfsfólk og nemendur Brekkuskóla óskar Alexander og Þórarni innilega til hamingju með frábæran árangur.
Lesa meira