Alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis

Á mánudaginn er alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis en 21. mars ár hvert er tileinkaður heilkenninu og honum fagnað víða um heim. Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu árið 2011 að dagurinn skyldi hafa þetta hlutverk og dagsetningin er ekki tilviljun því Downs-heilkenni orsakast af þrístæðu á litningi 21. Við í Brekkuskóla ætlum að fagna deginum með því að mæta í ósamstæðum sokkum og hvetjum við alla til að taka þátt með okkur.