Fiðringur 5. maí 2022

Þann 5. maí kl. 20 fer í fyrsta sinn fram Fiðringur á Norðurlandi, náfrændi Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta eru hæfileikakeppnir grunnskólanna þar sem 8. 9. og 10. bekkir fá að taka þátt. Átta skólar skráðu sig til þátttöku í ár. 

 Brekkuskóli á lið í keppninni í ár og mega nemendur í 8. 9. og 10. bekk kaupa miða á viðburðinn. Það er takmarkaður miðafjöldi því nemendur frá öllum skólunum 8 þurfa að komast fyrir í salnum.  Reiknaður var út miðafjöldi á skóla í hlutfalli við stærð unglingadeildanna.

Brekkuskóli fær 100 miða  í HOFI. Hér gildir því fyrstur kemur, fyrstur fær.  Miðaverð er 1000 krónur og hér er hlekkur á tix fyrir þinn skóla. Við vonumst til þess að samnemendur fylki sér um sitt lið og fjölmenni í HOF á Fiðring sem verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV2

https://tix.is/is/mak/specialoffer/cum7jdqunlapg