Útivistardagur á morgun þriðjudag

Minnum á útivistardag skólans á morgun, þriðjudaginn 17. mars. Dagurinn er ætlaður til útiveru og hreyfingar þar sem nemendur fara annað hvort í Hlíðarfjall eða á skauta.

Skipulag dagsins

  • 1.–6. bekkur fer í Hlíðarfjall.
  • 7.–10. bekkur getur valið um að fara annað hvort í Hlíðarfjall eða á skauta.

Skautahöll

Nemendur ganga af stað með kennurum um kl. 8:30

Nemendur ganga til baka með kennurum um kl. 11:30

Hlíðarfjall

Rútur

Rútur fara fram og til baka milli skólans og Hlíðarfjalls. Mikilvægt er að nemendur mæti við Íþróttahöllina að minnsta kosti 5 mínútum fyrir brottför.

Í fréttabréfum árganga hefur komið fram hvenær kennarar óska eftir að nemendur séu mættir í skólann. Þaðan verður farið saman í rútur í Hlíðarfjall samkvæmt skipulagi dagsins.

Brottför:

  • 7.–10. bekkur – mæting við rútu kl. 08:15, brottför kl. 08:20
  • 4.–6. bekkur – mæting við rútu kl. 08:15, brottför kl. 08:20
  • 1.–3. bekkur – mæting við rútu kl. 08:35, brottför kl. 08:45

Heimferð:

  • 1.–3. bekkur – brottför kl. 11:00
  • 4.–6. bekkur – brottför kl. 12:00
  • 7.–10. bekkur – brottför kl. 12:30

Lok dags

  • Nemendur í 5.–10. bekk mega fara heim eftir hádegismat.
  • Nemendur í 1.–4. bekk ljúka hefðbundnum skóladegi.
  • Þeir sem eru skráðir í Frístund fara þangað að skóladegi loknum.

Við hvetjum nemendur til að klæða sig eftir veðri og mæta með góða skapið 😊