Foreldrafundir í 1., 3., 5. og 8. bekk

Nú er komið að árlegum foreldrafundum hjá fjórum árgöngum í Brekkuskóla. Markmið fundanna er að efla tengsl milli foreldra, kynna starf skólans og skapa skemmtilegt tækifæri til samveru.

Dagsetningar og tímar

  • 1. bekkur: 14. og 21. september
  • 3. bekkur: 15. og 22. september
  • 5. bekkur: 16. og 23. september
  • 8. bekkur: 17. og 24. september

Seinni parts fundirnir eru kl.:  16:30–18:00 
Allir morgunfundir eru kl.:  8:15–9:00 

Dagskrá

  • Fyrra skiptið: Foreldrar og nemendur. Foreldrar halda bekkjarfund í heimastofu á meðan nemendur taka þátt í hópefli með íþróttakennurum. Að lokum er boðið upp á súpu og brauð í matsalnum.
  • Seinna skiptið: Foreldrar mæta í sal skólans kl. 8:15  og þar munu Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir og Ragnhildur Íris Einarsdóttir frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri vera með erindi fyrir foreldra.  Síðan munu skólastjórnendur fara stuttlega yfir grunnþætti uppbyggingarstefnunnar og almennt starf skólans.

Mikilvægt

Öll börn þurfa að eiga fulltrúa á báðum fundum. Ef foreldrar komast ekki er óskað eftir að einhver nákominn mæti í þeirra stað.

Með kærri kveðju,
Skólastjórnendur Brekkuskóla