Frábær árangur Brekkuskóla í Fiðringi

Nemendur Brekkuskóla náðu glæsilegum árangri í hæfileikakeppninni Fiðringi og hlutu annað sæti í keppninni.

„Gott silfur er gulli betra," segir máltækið, og það á sannarlega við hér. Framlag nemenda Brekkuskóla vakti verðskuldaða athygli fyrir fagmennsku, framkomu og jákvætt viðmót allan tímann.

Leikstjóri hópsins hrósaði nemendunum sérstaklega fyrir hegðun og samskipti í kringum undirbúning og framkvæmd keppninnar. 

Hann bætti við að öll samskipti, hegðun og atferli hópsins hefðu verið „upp á 12 af 10 mögulegum – bara eins og atvinnufólk."

Brekkuskóli óskar þessum frábæru fulltrúum sínum innilega til hamingju með árangurinn og glæsilega framkomu.