Hjólað í skólann?

 

Í blíðunni á sumardaginn fyrsta er við hæfi að rifja upp hjólareglurnar:-) 

Nemendum skólans er heimilt að koma á reiðhjólum í skólann frá 7 ára aldri. Samkvæmt umferðarlögum mega börn yngri en 7 ára alls ekki vera úti í almennri umferð á reiðhjóli nema þau séu undir leiðsögn og eftirliti 15 ára eða eldri.

Það er mjög mikilvægt að gengið sé frá hjólum við skólann.

Reiðhjól og önnur hjólaleiktæki eru alfarið á ábyrgð nemenda og forráðamanna þeirra, einnig er það á ábyrgð forráðamanna að nemendur noti viðeigandi öryggisbúnað.

Umferð reiðhjóla á skólalóð á skólatíma er bönnuð. Umferð annarra hjólaleiktækja en reiðhjóla á skólalóð miðast eingöngu við frímínútur og hádegi á malbikaða vellinum austan megin við aðalbyggingu.

Rampar eru eingöngu fyrir hjólabretti, línuskauta og hlaupahjól.