Hrekkjavökutónleikar Tónlistarskólans á Akureyri

Miðvikudaginn 28. október, fara fram hinir árlegu Hrekkjavöku tónleikar blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri. Þar stíga á svið um 60 nemendur úr grunnskólum Akureyrar. Tónleikarnir hefjast kl. 18:00 og er ókeypis inn.
 
Hlökkum til að sjá ykkur!