Í samræmi við reglugerð Mennta- og barnamálaráðuneytisins um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum verður Brekkuskóli nú alfarið símafrír skóli alla daga vikunnar.
Hingað til hafa nemendur haft heimild til að nota farsíma á föstudögum, en frá og með föstudeginum 30. október fellur sú undanþága úr gildi.
Nemendur í 8.–10. bekk hafa þegar verið upplýstir um breytinguna, enda hefur hún mest áhrif á þann hóp. Nemendur á unglingastigi hafa haft leyfi til að dvelja inni í frímínútum og hafa því helst nýtt sér heimild til símanotkunar á föstudögum.
Samkvæmt reglugerðinni nær símafrí til alls skólatímans, þar með talið frímínútna og matarhléa. Við minnum jafnframt á að símaúr eru ekki leyfð á skóla- og frístundatíma, nema sérstakar undanþágur eigi við.
Markmiðið með símafríinu er að stuðla að auknum námsfriði, betri einbeitingu, vellíðan og jákvæðum félagslegum samskiptum nemenda.
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ræða breytinguna við börnin sín og þökkum fyrir gott samstarf.
Nánari upplýsingar má finna í reglugerð nr. 945/2026 um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is