Til hamingju 9. SS

Barnabókasetur Íslands stóð nú í fimmta sinn fyrir Siljunni, myndbandasamkeppni fyrir grunnskólanemendur, í þetta sinn í samstarfi við Borgarbókasafnið í Reykjavík. Keppt er í tveimur flokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Siljan er opin nemendum í öllum skólum landsins en keppnin er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. 

Markmið keppninnar er einfalt: Að auka áhuga barna og unglinga á bóklestri. Við viljum fá krakka til að lesa meira, pæla í því sem þau lesa og tjá sig með sínum hætti um bókmenntir. Börn, og sérstaklega unglingar, leita að fyrirmyndum í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir því gríðarmiklu máli að krakkar sjái aðra krakka lesa; lestur þarf að vera sýnileg, spennandi og eftirsóknarverð afþreying. Með Siljunni getum við styrkt áhugasama lesendur, skapað jákvæðar lestrarfyrirmyndir og virkjað hina ungu lesendur til jafningjafræðslu. Þannig getum við smitað fleiri af lestrarbakteríunni og stuðlað að bættu læsi. 

Markmiðið með Siljunni er þó ekki síður að efla skólasöfnin: Aðalverðlaunin eru 100.000 króna bókaúttekt fyrir skólasöfn sigurvegaranna frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Skólasöfn Brekkuskóla og Glerárskóla á Akureyri, Ingunnarskóla, Vogaskóla, Kelduskóla og Seljaskóla í Reykjavík og Bláskógaskóla í Reykholti og hafa nú þegar fyllt hillurnar með aðstoð Siljusigurvegara. Það getur því skipt skólana verulegu máli að nemendur taki þátt í keppninni.