Útivistardagur 24. apríl 2019

Miðvikudaginn 24. apríl er tilraun nr. 3 til að fara í fjallið;-). Gert er ráð fyrir að dvelja í fjallinu fram að hádegi.  

Þær lyftur sem opnar verða eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut og Hjallabraut. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls. 
Lyftukortin gilda allan daginn og því geta nemendur nýtt sér það en það þarf að skila inn skíðabúnaðinum þegar skipulagðri dagskrá lýkur eða semja um leigu á honum. Ef nemendur ætla að verða eftir í Hlíðafjalli verður að koma samþykki frá foreldrum til umsjónarkennara og þá eru nemendur á eigin vegum í fjallinu. 
Nemendur þurfa að koma klæddir eftir veðri. Húfa, vettlingar, hlífðarbuxur og hjálmur mega ekki gleymast og muna eftir nestinu. 

Hádegismatur verður snæddur í skólanum. 

Vakin er athygli á því að veður og færi geta breyst á skömmum tíma og verða þá allir að taka mið af því - en spáin er góð:-) 

Nemendur mæta í skólastofur klukkan 8.

Farið verður frá skólanum sem hér segir:
8. - 10. bekkur kl. 08:15
4. - 7. bekkur kl. 08:45
1. - 3. bekkur kl. 09:15

Lagt verður af stað úr Hlíðarfjalli sem hér segir:
1. - 3. bekkur kl. 11:30    (Skólalok um 13:10 og svo Frístund fyrir þá sem eru skráðir)
4. - 7. bekkur kl. 12: 00    
8. - 10. bekkur kl. 12:30    

Með útivistarkveðju úr skólanum!