Útivistardagur 5. september

Vegna veðurútlits var ákveðið að flýta útivistardeginum sem vera átti á fimmtudaginn fram til morgundagsins, þriðjudagsins 5. september. Veðurspáin er slæm fyrir fimmtudaginn en mjög góð fyrir morgundaginn og mikilvægt að nemendur geti notið veðurblíðunnar.  

1.    bekkur fer í Lystigarðinn og á leikvöll við Suðurbyggð, mæting kl. 8:00 í skóla
2.    bekkur fer í Naustaborgir, mæting kl. 8:00 í skóla
3.    bekkur tekur upp kartöflur í Gróðrastöð, mæting kl. 8:00 í skóla
4.    bekkur hjólar í Kjarnaskóg og gengur upp í Gamla, mæting kl. 8:00 í skóla
5.    bekkur hjólar inn að Hömrum, mæting kl. 8:00 í skóla
6.    bekkur hjólar inn að Hömrum, mæting kl. 8:00 í skóla
7.    - 10. bekkur gengur inn Glerárdal, mæting kl. 8:15 á bílaplan við Súlur.  (Gömlu ruslahaugarnir)   Þeir nemendur sem ekki geta fengið far uppeftir mæta í skóla kl. 8:00 og fá far þaðan.   Innanskólaval fellur niður á útivistardegi og nemendur hafa val um að mæta í samvalsgreinar.  

Nánari upplýsingar munu koma í tölvupósti frá umsjónarkennurum.