Vel heppnað skólaþing

Þriðjudaginn 11. október var haldið um 45 manna skólaþing í Brekkuskóla um samskipti og líðan. Á þinginu völdu þingmenn eina af fjórum stöðvum þar sem ákveðið efni var til umræðu. Þingmenn létu hugmyndir sínar í ljós á miðum sem voru hengdir upp og flokkaðir eftir efni. Í gegnum þessa vinnu sköpuðust góðar umræður í hópunum. Í lokin voru hugmyndir hvers hóps kynntar. Útkoman var hugmyndabanki sem styrkir enn frekar undirstöður skólastarfsins og nýtist til að gera góðan skóla enn betri. Hugmyndabankinn verður nýttur við endurskoðun á skólanámskránni. Það var mat þeirra sem sátu þingið að vel hefði tekist til. Okkur langar að þakka öllum sem tóku þátt í þinginu kærlega fyrir þeirra framlag. Hér má nálgast nokkrar myndir frá þinginu.