Vorgrill og skólaslit 2022

Fimmtudaginn 2. júní verður hinn árlegi vorgrill- og leikjadagur Brekkuskóla. Þá fara nemendur í leikjastöðvar á skólalóð og enda svo í grilli á stéttinni við aðalanddyri skólans.

1.- 6. bekkur
Kl. 08:00 - 09:00 1. - 4.b "frjáls mæting" - opið í stofum - spil og rólegheit
Kl. 09:00 Mæting. Allir í 1. - 6. bekk
Kl. 09:20 - 10:25 Útileikir - stöðvar á skólalóð.
Kl. 10:25 - 10:45 Frímínútur
Kl. 10:45 Mæting í stofur til umsjónarkennara
Kl. 11:20 Grill 1. og 2.bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill
11:20 - 12:00 Gestir - væntanlegir 1. bekkingar haustið 2022 og foreldrar þeirra.
Kl. 11:40 Grill 3. og 4. bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill
Kl. 11:50 Grill 5. og 6. bekkur - heimferð eftir grill

Nemendur í 1. - 4. bekk eru í umsjón kennara sinna til kl. 12:00. Þá opnar Frístund og hinir fara heim sem ekki eru skráðir þar.

7. - 9. bekkur
Kl. 10:00 Mæting hjá umsjónarkennara. Allir í 7. - 9. bekk
Kl. 11:00 - 12:00 Útileikir - stöðvar á skólalóð.
Kl. 12:00 Grill og heimferð eftir það


Skólaslit 3. júní 2022 1. - 9. bekkur

Föstudaginn 3. júní mæta nemendur í 1. - 6. bekk í sínar heimastofur kl. 9:00.
Nemendur í 7. - 9. bekk mæta á sal klukkan 9 og fara eftir það í heimastofur.  Á sal mun skólastjóri segja nokkur orð og nemendur hlýða á tónlistaratriði frá samnemendum.  Að því loknu fara nemendur í stofur til umsjónarkennara.

Nemendur mæta samkvæmt eftirfarandi tímasetningum á sal:
Kl. 9  mætir 7., 8. og 9. bekkur
kl. 10 mætir  4., 5. og 6. bekkur

Útskrift 10. bekkjar
Skólaslit og útskriftarathöfn 10. bekkja hefst á sal skólans kl.15:00 og eru foreldrar, forráðamenn og velunnarar skólans hjartanlega velkomnir.  Myndataka verður fyrir athöfnina og hefst hún kl. 14:30 því þurfa nemendur að mæta kl. 14:30:-)