Föstudagur 3. júní - Útivist og vorgrill

Föstudaginn 3. júní verður hinn árlegi vorgrill- og leikjadagur Brekkuskóla. Þá fara nemendur í leikjastöðvar á skólalóð og enda svo í grilli á stéttinni við aðalandyri skólans. Dagurinn er líkt og í fyrra helgaður Unicef hreyfingunni  á Íslandi þar sem við sameinumst í verki með hreyfingu í þágu barna. Verkefnið felur í sér fræðslu um veruleika barna í fátækari löndum. Nemendur fá fræðslu hjá kennurum sem undirbúin er af Unicef hreyfingunni. Skólabíll fer frá Brekkuskóla kl. 12:15 þennan dag. Dagskrána má skoða hér:  

1.- 6. bekkur

Kl. 08:00 – 09:00 1. - 4.b ”frjáls mæting” - opið í stofum – spil og rólegheit

Kl. 09:00 Mæting. Allir í 1. – 6. bekk

Kl. 09:20 – 10:20 Útileikir – stöðvar á skólalóð. Nemendur safna límmiðum í Heimspassann frá Unicef.
Kl. 10:20 – 10:40 Frímínútur

Kl. 10:40 Mæting í stofur til umsjónarkennara

Kl. 11:20 Grill 1. og 2.bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill

11:20 - 12:00 Gestir - væntanlegir 1. bekkingar haustið 2016 og foreldrar þeirra.

Kl. 11:40 Grill 3. og 4. bekkur – heimferð eða Frístund eftir grill

Kl. 11:50 Grill 5. og 6. bekkur – heimferð eftir grill

Nemendur í 1. - 4. bekk eru í umsjón kennara sinna til kl. 12:00. Þá opnar Frístund og hinir fara heim sem ekki eru skráðir þar.

7. – 9. bekkur

Kl. 10:30 Mæting hjá umsjónarkennara. Allir í 7. – 9. bekk

Kl. 10:40 – 12:00 Útileikir – stöðvar á skólalóð

Kl. 12:00 Grill og heimferð eftir það