Öll myndböndin verður því hægt að sjá á netinu. Valin myndbönd verða jafnframt tengd við einn fjölsóttasta vef landsins, gegnir.is þar sem þau munu koma að góðum notum þegar börn og unglingar leita sér að lesefni.
Verðlaun:
Fyrstu verðlaun: 25 þúsund krónur.
Önnur verðlaun: 15.000 krónur.
Þriðju verðlaun: 10.000 krónur.
Auk þess fær skólasafnið í skóla sigurvegarans 100 þúsund króna bókaúttekt fráFélagi íslenskra bókaútgefenda.
fyrir hönd Barnabókaseturs,
Brynhildur Þórarinsdóttir
Siljan hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði. Barnabókasetur er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Amtsbókasafnsins og Minjasafnsins á Akureyri. Umsjón með verkefninu er í höndum stjórnar Barnabókasetursins sem skipuð er Brynhildi Þórarinsdóttur, rithöfundi og dósent við Háskólann á Akureyri, Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra Minjasafnsins á Akureyri og Hólmkeli Hreinssyni Amtsbókaverði.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is