Ólympíuhlaup ÍSÍ

Nemendur Brekkuskóla tóku heldur betur vel á því í Ólympíuhlaupi ÍSÍ í ár. Alls tóku 362 nemendur af 419 þátt í hlaupinu, sem gerir 86% þátttöku.

Allir bekkir lögðu sitt af mörkum í sínum íþróttatímum og þegar kílómetrarnir voru teknir saman kom í ljós að nemendur höfðu hlaupið hvorki meira né minna en 1.289,6 kílómetra! Það er frábær árangur og gaman að sjá hversu öflug þátttakan var.

Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur lengi verið skemmtilegur liður í skólastarfi og markmiðið er einfalt og mikilvægt: að hvetja börn og ungmenni til hreyfingar og minna á hversu góð áhrif hún hefur á heilsu og vellíðan.

Við erum að sjálfsögðu mjög stolt af nemendum okkar. Þau sýndu dugnað, jákvæðni og frábæran anda í hlaupinu.

Takk fyrir frábæra þátttöku og vel gert, Brekkuskóli :-)