Upphaf skóladags kl. 8:10

Ákvörðun var tekin í skólaráði Brekkuskóla um að upphaf skóladags næsta skólaárs verði kl. 8:10. Þessi ákvörðun byggir á niðurstöðu kannana sem lagðar voru fyrir forráðamenn og starfsfólk þar sem yfirgnæfandi meirihluti var hlynntur þeirri breytingu að seinka skólabyrjun um 10 mínútur.   
Skólahúsnæðið verður því opnað kl. 7:50 í stað kl. 7:40.