30.10.2011
Nýafstaðið vetrarfrí og starfsdagar í Brekkuskóla voru nýttir af stórum hópi starfsfólks úr Brekkuskóla til
að sækja námskeið í Bandaríkjunum í Uppbyggingarstefnunni sem er agastjórnunarstefna skólans.
Lesa meira
14.10.2011
Í dag var brunaæfing í skólanum. Æfingin gekk mjög vel. Nemendur og starfsmenn fóru út samkvæmt rýmingaráætlun
skólans. Nú setjast stjórnendur og umsjónarmaður skólahúsnæðis niður og fara yfir hvað má gera enn betur. Til dæmis kom
í ljós að nokkur hjól nemenda voru fyrir aðalandyri hússins sem er ein rýmingarleiðin, en tilfinnanlega vantar hjólagrindur við aðaldyr
(vesturdyr) skólans.
Lesa meira
12.10.2011
Félagsmiðstöðin Trója, sem staðsett er í Rósenborg (gamla Barnaskólanum) þjónar Brekkuskóla, Lundarskóla,
Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
Lesa meira
11.10.2011
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum
sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árið 2002 og 2003 og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka
færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 2
tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. Eftirfarandi þættir eru teknir fyrir með börnunum í litlum
hópum:
Lesa meira
07.10.2011
Nýjar myndir er finna á myndasíðunni okkar hér fyrir ofan. Þar er m.a. að finna myndir af 1. árgangi sem hóf grunnskólagöngu
sína nú í haust. Það er greinilegt að þau hafa nóg við að vera og takast á við fjölbreytt verkefni. Sjá myndir hér.
Lesa meira
07.10.2011
Í Brekkuskóla tölum við gjarnan um hegðun eftir litum. Þannig náum við að hjálpa nemendur að útskýra og skilja
æskilega og óæskilega hegðun. Hegðun eftir litum er unnin upp úr agastjórnunarstefnu skólans en einnig úr Cat kassanum,
Olweusaráætlun gegn einelti og Uppbyggingarstefnunni. Lýsing á hverjum lit fyrir sig má nálgast hér.
Lesa meira
05.10.2011
Í dag gleðjast margir nemendur yfir nýföllnum, fyrsta snjó vetrarins. Þá er rétt að minna á hvernig við bregðumst við
snjókasti á skólalóðinni, en margir nemendur leika sér við það að kasta snjóboltum. Snjókast á skólalóð
er leyft við körfuboltaspjöldin norðan megin við skólann, á pallinum þar og á malbikaða vellinum. Snjókast er alls ekki leyfilegt á
öðrum svæðum. Aldrei má kasta snjóboltum í átt að skólanum þar sem gluggar eru.
Af gefnu tilefni er einnig rétt að minna nemendur og foreldra á að huga vel að öllum öryggisútbúnaði í umferðinni s.s.
ljósum og endurskini. Sjá nánar á vef Umferðastofu.
Lesa meira
05.10.2011
Forvarnardagurinn 5. október 2011
Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja
neyslu fíkniefna
Ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum
Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði
fíkniefnum að bráð
Byggir á niðurstöðum íslenskra vísindamanna sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa
vakið alþjóðlega eftirtekt
Forvarnardagur 2011 verður haldinn miðvikudaginn 5. október næstkomandi. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta
forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.
Kynningarmyndskeið
Lesa meira
22.09.2011
Námskeið fyrir foreldra 6-12 ára barna með ADHD. Sjá nánar hér.
Lesa meira
21.09.2011
Vikuna 12. - 16. september var gönguátak í skólanum þar sem efnt var til göngukeppni milli árganga.
Nemendur fengu hvatningu íþróttakennara til að ganga eða hjóla í skólann þessa viku og merktu umsjónarkennarar
við alla vikuna hverjir komu gangandi eða hjólandi. Sá árgangur sem stóð sig best var 5. ÞG
og fékk bekkurinn í dag viðurkenningu frá íþróttakennara og skólastjórnendum. Viðurkenningin voru forláta
gullskór sem listgreinakennarar höfðu útbúið. Nemendurnir í 5. ÞG gengu eða hjóluðu í 99% tilvika. Almennt um
átakið má segja að þátttaka hafi verið góð og skiptist árangur eftir stigum sem hér segir:
Yngsta stig 95%, miðstig 85,4% og elsta stig 88,2%.
Nemendur og starfsfólk skólans er áfram hvatt til að ganga eða hjóla í skólann.
Sjá nánar um átakið á landsvísu á http://www.gongumiskolann.is/
Lesa meira