Fréttir

Jólakveðja frá Brekkuskóla

  Kæru nemendur, foreldrar, forráðamenn og starfsmenn Brekkuskóla, Við óskum ykkur gleðilegra jóla og vonum að þið njótið hátíðarinnar. Við sjáumst síðan á nýju ári og hefjum það með nemendaviðtölum 4. og 5. janúar. Kennt verður samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 6. janúar. Stjórnendur
Lesa meira

Vinningslið Brekkusvision unglingastigs

Þessi fríði hópur vann Brekkuvision unglingastigs.
Lesa meira

Vinningslið Brekkusvision miðstigs

Eftir frábæra keppni stóðu þrír drengir eftir sem sigurvegarar í Brekkuvisíon miðstigs. Þeir Aðalsteinn, Óli og Sólon í 7. ÁÁ fengu farandbikar til varðveislu til næsta árs og verður hann í stofunni þangað til. Við óskum þeim kærlega til hamingju og þökkum öllum þeim sem þátt tóku kærlega fyrir sem og þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd. Fleiri myndir má sjá undir myndir hér að ofan á val-slá.
Lesa meira

Desemberfréttabréfið er komið

Hægt er að nálgast það hér...
Lesa meira

Hreyfistrætó

Kæru foreldrar Á fundi stjórnar foreldrafélags Brekkuskóla, þann 6. desember síðastliðinn, var ákveðið að hætta með verkefnið Hreyfistrætó. Stjórnin vill þakka þeim foreldrum og nemendum sem lögðu verkefninu lið og gerðu okkur mögulegt að halda Hreyfistrætó gangandi í 10 vikur.
Lesa meira

Valgreinakvöld síðasta miðvikudag

Lokaverkefni hjá valgreinunum: Söngur og framkoma, tónlist og tölvur og stórhljómsveit. Félagsmálaval sá um umgjörð hátíðarinnar sem og auglýsingar. Heimilisfræðihópur sá um veitingar fyrir þátttakenndur og 10. bekkur var með kaffi og vöfflusölu. Heimir, Hanna Dóra og Anna Guðný voru kennarar valhópanna og tókst kvöldið mjög vel að þeirra sögn. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði. Myndir af kvöldinu má sjá hér...
Lesa meira

Birna kennari blakkona ársins

Birna Baldursdóttir úr KA og Emil Gunnarsson úr Stjörnunni voru í dag útnefnd blakkona og blakmaður ársins 2010 af Blaksambandi Íslands.
Lesa meira

1. bekkur að baka

1. bekkur fór í heimilsfræðistofuna í vikunni og bakaði "jólatré". Nemendur sem og kennarar skemmtu sér konunglega og lagði dásamlegan ilm um ganginn. Nemendur fengu síðan að fara með afraksturinn heim. Myndir má sjá hér...
Lesa meira

Afmælisboð

Kæru foreldrar og forráðamenn. Ákveðið hefur verið af stjórnendum og kennurum að beina því til ykkar að senda nemendur ekki með boðskort í afmæli í skólann til dreifingar. Slíkt hefur valdið vandræðum. Hægt er að nota mentor til að senda á foreldra með því að haka við foreldra sem eiga að fá póst og senda boðið rafrænt. Kveðja, stjórnendur
Lesa meira