22.04.2009
Mánudaginn 27. apríl verður fræðsla fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla Akureyrar um skaðsemi fíkniefna.
Mikil umræðu hefur verið hér á landi um kannabis og lögleiðingu þess. Að því tilefni var ákveðið að taka
Marítafræðsluna fyrir 10. bekkinga en um hana sér Magnús Stefánsson.
Maríta á Íslandi er forvarnasvið Samhjálpar. Aðalverkefni er samstarf á vettvangi forvarnafélagsins Hættu áður en
þú byrjar er varðar fræðslu um skaðsemi fíkniefna. Fræðslufulltrúi Hættu áður en þú
byrjar er Magnús Stefánsson [ magnus@samhjalp.is ] s. 897 1759. Unglingar í vanda og /
eða foreldrar þeirra, geta pantað viðtal hjá Magnúsi á göngudeild Samjálpar í síma 561 1000. Heimasíða marita er www.marita.is
Fræðslan verður kl. 13-15, þann 27. apríl og er fyrir alla nemendur í 10. bekk Brekkuskóla. Fræðslan fer fram í Rósenborg.
Nánari upplýsingar gefur Gréta Kristjánsdóttir forvarnarfulltrúi í síma 460-1243
Lesa meira
14.04.2009
Miðvikudaginn 15. apríl 2009, fyrsta kennsludag eftir páskaleyfi, ætlum við að syngja saman á sal. Það er hann Heimir tónlistarkennari
frá Tónlistarskólanum sem ætlar að leiða sönginn að þessu sinni.
Lesa meira
02.04.2009
Páskaleyfi hefst við lok skóladags föstudaginn 3. apríl 2009. Starfsdagur kennara verður þriðjudaginn 14. apríl 2009 og nemendur mæta aftur
í skólann samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 15. apríl 2009.
Starfsfólk og stjórnendur óska nemendum ánægjulegra daga framundan.
Lesa meira
31.03.2009
Í gær, mánudaginn 30. mars 2009, voru lög samþykkt á Alþingi þess efnis að samræmd próf verði ekki í vor hjá 10.
bekk. Þau verða eftir sem áður næsta haust í september hjá þeim sem nú eru í 9. bekk eins og áður hefur komið fram.
Lesa meira
31.03.2009
Tölvur hafa verið vinsælar fermingargjafir síðustu ár og því vilja Heimili og skóli og SAFT vekja athygli foreldra á að
þó að barnið eignist sína eigin tölvu minnkar ekki ábyrgð foreldra hvað jákvæða, ábyrga og uppbyggilega notkun barna
þeirra á nýmiðlum varðar. Leiðbeiningarnar má nálgast hér.
Lesa meira
30.03.2009
4. bekkur hefur undanfarið safnað rusli og unnið úr því skemmtileg listaverk. Þau hafa komist að því að óhemju magn af rusli kemur
frá heimilum á einni helgi, en þau söfnuðu ruslinu heima hjá sér eina helgi. Engu mátti henda og sáu krakkarnir heilmargt notagildi út
úr þessu öllu saman. Sjá myndir frá listasýningunni í myndaalbúmi hér
á vefnum.
Lesa meira
24.03.2009
Nemendur Brekkuskóla gerðu það gott á sundmóti um síðustu helgi. Sundfélagið Óðinn átti 18 keppendur á
Íslandsmóti Sundsambands Íslands í Laugardalnum.
Lesa meira
19.03.2009
Miðvikudaginn 25. mars 2009 verður hæfileikakeppni miðstigs haldin. Keppnin kemur í stað söngvakeppni sem við köllum Brekkuvision en
við höldum því heiti áfram. Keppnin fer þannig fram að hver bekkur leggur til eitt atriði sem kosið er um í undankeppnum innan bekkjanna og
að lokum verða þrjú bestu atriðin valin á sjálfu Brekkuvision.
Lesa meira
18.03.2009
Við vekjum athygli á páskavef Námsgagnastofnunar þar sem safnað hefur verið saman
fróðleik og verkefnum sem tengjast páskum og hafa birst undanfarin ár á síðunni Í dagsins önn. Á
Páskavefnum er meðal annars að finna nýja grein um Hallgrím Pétursson ásamt verkefnum eftir Svanhildi Kr. Sverrisdóttur. Allt efni
er á PDF formi til útprentunar.
Lesa meira
11.03.2009
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður nú haldin í ellefta sinn á þessu skólaári. Lokakeppnin mun fara fram í Kvos
Menntaskólans á Akureyri eins og undanfarin ár. Keppnin fer fram mánudaginn 16. mars 2009 kl.17:00 - 19:00. Undankeppni hefur farið fram hér í
skólanum til að velja úr þá keppendur sem munu koma fram fyrir hönd skólans.
Keppendur Brekkuskóla verða þeir Bjarmi Þórgnýsson Dýrfjörð og Alexander Jósep Blöndal.
Til vara verða þær Steinunn Atladóttir og Sigrún Mary McCormicK
Lesa meira