12.01.2009
Akureyri 6. janúar 2009
Ágætu foreldrar barna í grunnskólum!
Í samræmi við áherslur sem settar eru fram í skólastefnu Akureyrarbæjar hefur skólanefnd haft frumkvæði að
því að gera viðhorfskannanir í grunnskólum bæjarins. Tilgangur viðhorfskannanna er að kanna hversu ánægðir foreldrar eru með
starf grunnskólanna og starfsaðstæður þeirra. Þátttaka foreldra í könnununum er því mjög mikilvæg svo sjá megi
hvaða viðhorf þið hafið til starfsemi skólanna, bæði þess sem vel er gert og þess sem má bæta. Þátttaka foreldra er
því ein leið til að hafa áhrif, því niðurstöður kannananna hafa alltaf verið grundvöllur umræðna um það sem betur
má fara í skólastarfinu og hvernig megi styrkja það sem vel er gert.
Vinnum saman að því að gera góða skóla betri.
Gunnar Gíslason fræðslustjóri.
Lesa meira
20.12.2008
Okkar bestu jólakveðjur og ósk um gleði og frið á nýju ári 2009.
Starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira
20.12.2008
Jólaleyfi Brekkuskóla hófst eftir Litlu jólin 19. desember 2008. Nemendur mæta aftur í skólann þriðjudaginn 6.janúar 2009
samkvæmt stundaskrá.
Viðtalsdagur verður miðvikudaginn 14.janúar 2009 og verða boð send foreldrum á fyrsta skóladegi á nýjum ári.
Lesa meira
12.12.2008
Í dag barst okkur gjöf frá foreldrafélagi Brekkuskóla sem eru 100 stykki endurskinsborðar merktir skólanum. Er þetta góð
viðbót við vestin sem félagið afhenti okkur nú í haust. Við erum afar þakklát fyrir þennan góða styrk og fyrir allan
stuðning í þeim verkefnum sem liggja fyrir í skólastarfi Brekkuskóla.
Nemendur, stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira
04.12.2008
Fréttabréf Brekkuskóla fyrir nóvember - desember 2008 er komið út. Fréttabréfið má nálgast hér á síðunni.
Lesa meira
03.12.2008
10. bekkingar hafa skipulagt dansleiki í sal skólans. Þar verður meðal annars farið í:
· ásadans
· limbó
· hókí pókí
· stoppdans
· ofl. skemmtilegt
Áætlað er að ávöxtur, safi og smá nammigott verði innifalið í aðgangseyri sem verður 500 kr.
Fimmtudagur 4. desember kl.16—18 fyrir 1. - 4. bekk
Þriðjudaginn 16. desember kl. 17 - 18:30 fyrir 5. - 7. bekk
Sjáumst hress og kát á ballinu!
10. bekkingar
Lesa meira
02.12.2008
Í gær 1. desember var 90 ára afmæli fullveldisins Ísland. Af því tilefni var stefnumót allra barna í 1. og 2. bekk á Akureyri
í kirkjutröppunum þar sem þau sungu lög og ljóð eftir Matthías Jochumson og fleiri þekkt skáld okkar Akureyringa.
Greinilegt var að nemendur höfðu æft sig vel heima og í skólanum því athöfnin þótti takast mjög vel.
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla óskar öllum ánægjulegrar aðventuhátíðar.
Lesa meira
24.11.2008
Sótt af vef Óðins http://www.odinn.is/ 24.okt.
´08
Óðinn eignaðist í dag langþráðan Íslandsmeistara í sundi, þann fyrsta í fullorðinsflokki til fjölda
ára. Þar var á ferð Bryndís Rún Hansen í 50 m flugsundi og í leiðinni setti hún aldursflokkamet stúlkna og Akureyrarmet
stúlkna og kvenna.
Raunar tvíbætti Bryndís Akureyrarmetið því það féll fyrst í undanrásum í morgun. Í úrslitasundinu lagði
hún að velli Ólynpíufarana Ragnheiði Ragnarsdóttur og Sarah Blake Bateman. Ekki amalegur árangur.
Til hamingju Bryndís Rún með frábæran árangur!
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla
Lesa meira
18.11.2008
Að beiðni Ágústs Jakobssonar, skólastjóra Naustaskóla, sendum við neðangreint skeyti á foreldrahópinn. Pósturinn
er sérstaklega ætlaður þeim sem búsettir eru í Naustahverfi og öðrum sem hugleiða að skrá börn sín í
Naustaskóla.
Kæru foreldrar
Vakin er athygli á að búið er að opna heimasíðuna www.naustaskoli.is. Þar er að finna nokkuð af upplýsingum um skólann,
húsnæðið og þann undirbúning sem fram hefur farið, en í framhaldinu munu svo upplýsingar um stefnu og starfshætti skólans birtast
á síðunni. Þar sem formleg skráning í skóla á Akureyri fer ekki fram fyrr en eftir áramót, en engu að síður er
orðið knýjandi að vita hve margir hugsa sér að skrá börn sín í skólann, bið ég ykkur um að kíkja á
heimasíðuna og smella þar á hnapp sem merktur er "Forskráning í Naustaskóla". Einnig er hægt að fara beint á slóðina hér
til að opna skráningarsíðuna. Nánari upplýsingar er að finna á skráningarsíðunni og á heimasíðu
skólans. Einnig er velkomið að hafa samband við undirritaðan ef spurningar vakna.
Bestu kveðjur,
Ágúst Jakobsson
skólastjóri Naustaskóla
agust@akureyri.is
s: 460-1454 / 847-8812
Lesa meira
10.11.2008
/*
/*]]>*/
Eins og þið hafið væntanlega orðið vör við er samræmd dagskrá fyrir alla nemendur í 9. bekk á landinu í tilefni
Forvarnardagsins. Hjá okkur fór þetta þannig fram að árgangurinn kom saman á sal. Fyrstur á dagskrá var Örlygur Þór
Helgason, framkvæmdastjóri KA, en hann talaði við nemendur um mikilvægi íþrótta og tómstundastarfs. Að því búnu
útskýrði hann net ratleik fyrir krökkunum og dreifði til þeirra merktum pennum sem eru gjöf Forvarnardagsins.
Því næst var horft á myndband þar sem m.a. fjallað var um niðurstöður af vinnu þessa dags á síðasta ári og þau
atriði dregin fram sem hafa ber í huga til að forðast vímuefni.
Loks var komið að því að nemendur unnu verkefni í hópavinnu. Niðurstöður þeirrar vinnu er að finna hér að neðan.
Verkefnin eru þrenns konar; 1) samvera, 2) íþrótta- og æskulýðsstarf og 3) hvert ár skiptir máli.
Niðurstöður nemenda í 9. bekk í Brekkuskóla eru eftirfarandi. Bekkirnir eru þrír og eitt svar frá hverjum bekk við hverri spurningu.
Umræðuefni: Samvera.
a) Hvað mynduð þið vilja gera oftar með fjölskyldunni?
Spilakvöld, ferðast, kósíkvöld, ákveða t.d. eitt fjölskyldukvöld í viku, baka, útivist, versla saman, spjallkvöld.
Fara til útlanda, ferðast, spila, fá ís.
Fara til útlanda, fara í sumarbústað eða eitthvað frí. Velja einhver sérstakan dag til að hittast og spila eða horfa á mynd eða
annað (fara í ísbúðina Brynju, keilu o.fl.)
b) Af hverju ætti fjölskyldan að verja sem mestum tíma saman að þínu áliti?
Til þess að kynnast hvert öðru betur og vera náin. Styrkja tengsl og forðast fíkniefni og áfengi.
Þá byrjar maður seinna að drekka, reykja og neyta fíkniefna.
Svo að fjölskyldan verði nánari og maður verði öruggari í samfélaginu. Það hindrar fíkniefnaneyslu. Svo maður geti treyst
foreldrum sínum.
c) Hvað getið þið gert til að vera meira með fjölskyldunni?
Hætta að horfa á sitt hvort sjónvarpið og vera saman. Elda oftar saman.
Ákveða kvöld sem allir ætla að vera saman heima. Tala við foreldrana, biðja þau að kaupa eitthvað gott og hafa kósíkvöld.
Minnka tölvunotkun og borða saman á matartímum og vera meira heima. Tala meira við foreldrana og stinga uppá hlutum til að gera saman.
Steinunn Harpa Jónsdóttir námsráðgjafi
Lesa meira