Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2019

Brekkuskóli tók þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Það má með sanni segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og var unun að hlusta á fallegan upplestur hjá nemendum í grunnskólunum á Akureyri. Fulltrúar Brekkuskóla voru þær Brynja Karítas Thoroddsen og Emma Ægisdóttir og varamenn þeirra þau Birna Dísella Bergsdóttir og Óskar Þórarinsson. Þau stóðu sig öll vel og tryggði Brynja Karítas okkur fyrsta sæti í keppninni. Þess má geta að nemendur úr Brekkuskóla tóku einnig þátt í tónlistarflutningi á hátíðinni. Við erum óendanlega stolt af okkar fólki. Hér má sjá nokkrar myndir frá athöfninni.
Lesa meira

Öskudagsball

10 bekkur heldur Öskudagsball fyrir 1. – 3. bekk þriðjudaginn 5.mars frá kl 16.00-17.30. Aðgangseyrir er 500kr, Svali og popp fylgir. Öskudagsball fyrir 4. – 6. bekk þriðjudaginn 5.mars frá kl 18.00-20.00. Aðgangseyrir er 500kr, sjoppa er á staðnum. Nemendur eru hvattir til að mæta í búningi. Ágóði rennur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Lesa meira

Skák í 3. bekk

Nemendur í 3. bekk fengu skemmtilega heimsókn þegar Hrafn Jökulsson kom og sagði þeim frá ferðum sínum til Grænlands. Hann sýndi myndir og sagði frá landi og þjóð, skákkennslu og skákmótum sem haldin hafa verið á Grænlandi. Í lokin var svo fjöltefli þar sem nemendur fengu að tefla við Hrafn.
Lesa meira