18.04.2018			
	
		
Litla upplestrarkeppnin var haldin við hátíðlega athöfn á sal Brekkuskóla 17. apríl 2018.  Nemendur í 4. bekk lásu ljóð og sögur fyrir áheyrendur í sal.  Einnig voru tónlistaratriði í boði 4. bekkjar.  Nemendur stóðu sig frábærlega enda búnir að leggja mikið á sig og æfa upplestur í allan vetur.  Takk fyrir skemmtunina krakkar! 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					04.04.2018			
	
		Brekkuskóli gerði sér lítið fyrir og fór með sigur af hólmi í Skólahreysti. Keppnin var haldin í Íþróttahöllinni og þar kepptu nemendur í grunnskólum Akureyrar sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Liðið okkar skipuðu Birnir Vagn Finnsson, Saga Margrét Blöndal, Magnea Vignisdóttir, Sævaldur Örn Harðarson, ásamt Maríu Arnarsdóttur og Einari Ingvasyni. Þjálfari þeirra hann Jói Bjarna hefur stutt dyggilega við liðið sem hefur lagt afar hart að sér við æfingar í vetur og uppsker nú eftir því. Áhorfendur skemmtu sér konunglega í Höllinni og voru skólanum til sóma. 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					23.03.2018			
	
		Í gær og dag héldu nemendur á mið og unglingastigi hæfileikahátíð þar sem nemendur stigu á stokk með fjölbreytt og skemmtileg atriði. 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					20.03.2018			
	
		Pangea stærðfræðikeppnin var haldin í þriðja sinn hér á landi laugardaginn 17. mars síðastliðinn.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					16.03.2018			
	
		Rakel Helmsdal rithöfundur frá Færeyjum heimsótti 6. - 10. bekk í Brekkuskóla í dag. Hún las upp úr bók sinni:,,Hon, som róði eftir ælaboganum”, sagði frá sjálfri sér og bókinni ásamt því að greina frá tilurð bókanna um stóra og litla skrímslið en sú nýjasta: ,,Skrímsli í vanda” fékk íslensku bókmenntaverðlaunin í ár.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					08.03.2018			
	
		Brekkuskóli tók þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri.  Það má með sanni segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og var unun að hlusta á fallegan upplestur hjá nemendum í grunnskólunum á Akureyri.  Fulltrúar Brekkuskóla voru þær Arnfríður Kría Jóhannsdóttir og Steingerður Snorradóttir og varamenn þeirra þau Guðrún Bergrós Ingadóttir og Tómas Óli Ingvarsson. Þau stóðu sig öll vel og tryggði Arnfríður Kría okkur þriðja sæti í keppninni.  Þess má geta að nemendur úr Brekkuskóla tóku einnig þátt í tónlistarflutningi á hátíðinni.  Við erum óendanlega stolt af okkar fólki. 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					14.02.2018			
	
		Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					05.02.2018			
	
		Útivistardeginum hefur verið frestað um óákveðinn tíma
Lesa meira